Brúarfljót 2, 270 Mosfellsbær
114.900.000 Kr.
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
3 herb.
255 m2
114.900.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2020
Brunabótamat
69.050.000
Fasteignamat
65.700.000

GOTT 255 FM ATVINNU/IÐNAÐARHÚSNÆÐI MEÐ STÓRUM INNKEYRSLUDYRUM Á GÓÐUM STAÐ - BRÚARFLJÓTI Í MOSFELLSBÆ.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 190,2 fm.

Um er að ræða bil merkt 0106 í iðnaðarhúsnæði byggðu árið 2020, birt stærð gólfflatar er 127,5 fm. ásamt skráðu rými á efri hæð 62,7 fm. (auk millilofts um 65 fm. sem er ekki skráð í birta fermetratölu).

Á jarðhæð er húsnæðið er vélslípað gólf með afstúkaðri kaffiaðstöðu með innréttingum og vaski ásamt snyrtingu með handlaug með áföstum neðri skáp ásamt sturtuklefa, niðurfall er í gólfi. Útgöngudyr eru einnig aftan við húsnæðið.
Á efri hæðum, sem eru neðra og efra bil, er vínilparket á gólfi, glæsilegur breiður stigi með steinteppi og millipalli er á milli hæðanna með pólýhúðuðu stálhandriði. Búið er að leggja að fyrir eldhúsi á efri hæð, en einnig væri auðvelt að koma þar fyrir baðherbergi þar sem nú er geymsla.

Byggingarnar við Brúarfljót 2 er forsteypt atvinnuhúsnæði með þremur stakstæðum byggingum á 8.904,7 fm. lóð, byggingarnar standa á forsteyptum sökkuleiningum. Ytra birgði útveggja er dökk völun, yleiningaþak á grá tónuðum lit. 
Burðarvirki eru forsteyptar einingar frá BM Vallá, einangraðar utan frá með 7 cm veðurkápu með dökkri völun. Þak er með þaksperrum úr límtré og þakklæðning yleiningar með steinullareinangrun, Halli þaks 8 %. 
Stór innkeyrsludyr, fullfrágengin 4,0 m. x 4,2 m. með rafmagnsmótor. Gluggar og gönguhurðarkarmar; timbur að innan og ál að utan. Bilið er með þriggja fasa rafmagni.

- Mjög gott sameiginlegt athafnasvæði á lóðinni með malbikuðu plani.
- Snjóbræðsla á stæði fyrir framan iðnaðarhurð.
- Húsnæði sem hentar mjög vel undir hvers konar verkstæðisrekstur.
- Gert er ráð fyrir að setja svalir, sem snúa þá í suðvestur.

Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf  GSM: 896-3038 eða [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.