Vallakór 2B, 203 Kópavogur
62.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
79 m2
62.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2014
Brunabótamat
46.800.000
Fasteignamat
60.850.000

ÍBÚÐIN ER SELD!
Því verður ekki "OPIÐ HÚS"


GLÆSILEG 80 FM 3JA HERB. ÍBÚÐ Á 3. HÆÐ MEÐ 22,5 FM LOKUÐUM SVÖLUM TIL SUÐURS Á ÞESSUM VINSÆLA STAÐ Í KÓPAVOGI.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 79,9 fm.

Um er að ræða rúmgóða og fallega 3ja herb. íbúð á 3. hæð í steinsteyptu lyftuhúsnæði byggðu árið 2014.
Íbúðin sjálf er skráð 73,9 fm. og sér geymsla 6,0 fm. Svalirnar eru skráðar um 22 fm. og eru yfirbyggðar (ekki inn í fermetratölu).
Gengið er inn í forstofu en inn af henni er opið hol sem skiptir íbúðinni upp, en beint inn af er stofan en eldhúsið er þar opið til hægri við innganginn, þvottahúsið er inn af eldhúsinu. Stofan er rúmgóð og er gengið út á mjög rúmgóðar svalir sem eru með opnanlegri svalalokun. Svefnherbergisálman er til vinstri við holið, tvö rúmgóð svefnherbergi og baðherbergið á milli herbergjanna.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð, ásamt sameiginlegri dekkjageymslu og sér geymslu íbúðarinnar.

Forstofa/hol: Flísar á forstofu og fataskápur, parket er á holinu.
Eldhús: Falleg svört viðarinnrétting með góðu skápaplássi. Span helluborð og opið í stofuna, parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð með útgangi út á svalirnar, parket á gólfi, steinn í borðplötu og gufugleypir.
Svefnherbergin: Bæði herbergin eru parketlögð, rúmgóð og góðir fataskápar.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, rúmgóð sturta, upphengt salerni, skápur við handlaug og handklæðaofn.
Þvottahús: Flísar á gólfi, hillur og skolvaskur, gluggi með opnanlegu fagi.
Geymsla: Sér 6,0 fm. geymsla í kjallara fylgir íbúðinni.

Í sameign er sameiginleg vagna- og hjólageymsla ásamt dekkjageymslu.

- Um er að ræða einstaka íbúð á frábærum stað í Kópavogi.
- Sér inngangur frá svalagangi í lyftuhúsnæði.
- Næg bílastæði eru fyrir utan húsið.
- Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina.

Um er að ræða góða 3ja herb. íbúð í nýlegu lyftuhúsnæði, í góðu hverfi í Kópavogi þar sem stutt er í alla þjónustu.

Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf.  GSM: 896-3038  e-mail: [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.