Blikanes 24, 210 Garðabær
310.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
11 herb.
398 m2
310.000.000
Stofur
4
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1968
Brunabótamat
169.050.000
Fasteignamat
198.800.000

Hringdu núna og bókaðu einkaskoðun, eignin er laus strax. 

Til sölu glæsilegt, rúmgott og vel skipulagt 400 m2 einbýlishús á Arnarnesi.
Húsið er á stórri hornlóð, um 1300 m2, með fallegum sérhönnuðum suður garði og útsýni út á sjó. Stórt bílaplan með náttúrusteini er á lóðinni og tvöfaldur bílskúr. Frábært innra skipulag er á öllu húsinu.
Stór aðalhæð sem er um 280 m2 með þrjár samlyggjandi stofur auk tveggja opinna rýma skapa saman glæsilegt flæði. Rúmgott hjónaherbergi með innangengu fataherbergi og sér baðherbergi. Auk þess eru þrjú rúmgóð barnaherbergi með sér baðherbergi, forstofuherbergi, gestasnyrting og eldhús með borðkróki. Við rúmgóðan bakinngang er þvottahús, búr og beint aðgengi að eldhúsi með borðkrók.  
Gegnheilt parket úr hlyn er á allri hæðinni, auk þess sem allar hurðir eru sérhannaðar hágæða hurðir úr hlyn. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar frá Brúnás og úr hlyn. Þrjár hágæða sérsmíðaðar rennihurðir aðskilja opin rými.
Sér hannaður fallegur arinn prýðir miðstofuna, hlaðinn með Drápuhlíðargrjóti.
Neðri hæð var endurnýjuð árið 2015. Hún er með sér inngangi, einstaklega stóru, björtu herbergi, rúmgóðu holi, ný uppgerðu eldhúsi og nýju fallegu baðherbergi. Auðvelt væri að gera sér íbúð þar, innangengt er á milli hæða.

Tvöfaldur bílskúr með lítilli eldhúsinnréttingu og sér klósetti.
Einnig fylgir eigninni sér bílastæði fyrir bakinngang frá austur hlið hússins á Æðarnesi.

Garðurinn er sérhannaður með tilliti til að gefa húsinu sem glæsilegasta umgjörð. Efnisvals allt í hæsta gæðaflokki og plöntuúrval mikið og fjölbreitt. Falleg, sólrík verönd í suður ásamt heitum potti.
Hús á frábærum stað með mikla möguleika og einstaklega gott skipulag, innan sem utan.
 
Nýtt þak er á  íbúðarhúsinu, regnvatnsniðurföll endurnýjuð ásamt nýjum sérsmíðuðum þakkanti. Einnig eru allar sperrur endurnýjaðar og öll einangrun í lofti ný. Þetta er úttekið af verkfræðistofunni Verkís 2022-23. Öll loft að innan á aðalhæðinni eru ný með nýrri lýsingu og loftaklæðningu.
Neðri hæð var endurnýjuð 2015, (stækkaðir gluggar í stóra rýminu og eldhúsinu, ný gólfefni, nýtt bað, nýtt eldhús og nýjar hurðir).

Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason fasteignasali, [email protected], Gsm 895 3000.-
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.