Glæsileg og vel skipulögð útsýnisíbúð á 4. hæð í nýlega klæddu lyftuhúsi við Löngulínu í Garðabæ.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 169 fm. en auk þesss fylgja tvö bílastæði í bílakjallara íbúðinni, annað er með rafhleðslustöð, tvennar svalir.Eignin skiptist í 3 svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni, gang/hol, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, geymslu, tvennar mjög rúmgóðar svalir ( aðrar eru yfirbyggðar og ekki inn í fermetratölu) og tvö bílastæði í bílakjallara.Komið er inn í bjarta og rúmgóða
forstofu, fallegir innbyggðir fataskápar, flísar á gólfi.
Gangur / hol með flísum á gólfi.
Gestasalerni með flísum í hólf og gólf, granít á borði í kringum handlaug, upphengt salerni.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataherbergi innaf, eikarparket á gólfi og flísar að hluta. Útgengt er úr hjónaherbergi út á rúmgóðar svalir.
Svefnherbergi með rúmgóðum fataskáp og flísum á gólfi. Útgengt er úr herbergi út á svalir.
Svefnherbergi er rúmgott með rúmgóðum fataskáp, eikarparket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, falleg innrétting, granít á borði, upphengt salerni, baðkar, sturta með gleri og handklæðaofn.
Þvottahús er rúmgott, hvít innrétting, flísar á gólfi.
Eldhús er með fallegri innréttingu, granít á borðum og á milli innréttinga, eyja með helluborði og háf yfir, innbyggð uppþvottavél, bakarofn í vinnuhæð, flísar á gólfi.
Borðstofa er björt og rúmgóð. Útgengt er úr borðstofu út á stórar yfirbyggðar svalir.
Stofan er björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum. Fallegt og mikið útsýni er úr stofunni.
Sér
geymsla er staðsett í sameign á neðri hæð hússins.
Tvö bílastæði fylgja eigninni.
Þetta er einstaklega falleg og björt eign á góðum stað þar sem stutt er í stofnæðar og alla helstu þjónustu.
Einungis tvær íbúðir eru á hæðinni.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Ásmundur Skeggjason fasteignasali, [email protected], gsm 895 3000.