Klukkuberg 14, glæsilegt og einkar fjölskylduvænt parhús á tveimur hæðum ásamt innbyggðum bílskúr, á þessum glæsilega útsýnisstað í Setberginu í Hafnarfirði. Húsið er skráð 210,2 fm samkvæmt FMR en er í raun 26 fm stærra vegna óskráðra fm. Húsið er fyrir neðan götu og hefur verið mikið endurnýjað og vel viðhaldið. 3 D linkur hér af húsinu https://my.matterport.com/show/?m=3XeNSTMjo9K Komið er inn í flísalögð forstofa með fínum forstofuskápum, gestasalerni, gott forstofuherbergi, bjart fallegt alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa liggja saman, upptekin loft. Þaðan er útgengt út á góðar svalir með virkilega fallegu útsýni. Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu með miklu skápaplássi, eldhúsborðkrókur, gangur/ hol. Steyptur nýlega teppalagður stigi er á neðri hæð.
Á neðri hæð er rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi, inn af, gott hol sem gæti nýst sem sjónvarpshol, þaðan er útgengt út í garð þar sem búið er að setja vandaðan heitan pott og hann fylgir með. Tvö barnaherbergi, rúmgott baðherbergi, þvottahús með útgangi í garð. Á neðri hæð er gluggalaust herbergi sem nýtt er sjónvarps/ tómstundar herbergi og er ekki inn í fermetratölu hússins.
Bílskúrinn: Er skráður 25,7 fm, búið er að koma upp millilofti í honum sem ekki er skráð.
Fallegur og gróinn garður er við húsið, góður pallur þar sem búið er að setja heitan pott með einstaklega fallegt útsýni til suð-vesturs, hér er mjög sólríkt og skjólsælt.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu leikskóla og skóla.
Hringdu núna og bókaðu skoðun hjá Ásmundi Skeggjasyni, s: 895 3000, [email protected]