Frábærlega staðsett og virðulegt einbýli að Húnabraut 24, Blönduósi, sem er 254,7 fermetrar. Húsið er á tveimur hæðum, byggt úr steinsteypu árið 1958. Um er að ræða einbýli í klassíksum herragarðsstíl ásamt bílskúr.
Neðri hæðin skiptist í forstofu, hol, litla geymslu, 3 svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, stofu þar sem hægt er að ganga út á pall og gott þvottahús þar sem gengið er inn í bílskúrinn.
Efri hæðin skiptist í eldhús með búri, stóra stofu, 1-2 svefnherbergi og baðherbergi með baðkari. Parkett er á öllum svefnherbergjum og stofum. Nýlegt teppi er á milli hæða. Skipt var um neysluvatns- og frárennslislagnir árið 2008.
Auðvelt er að skipta þessari eign í tvær íbúðir og hafa þannig tekjur af eigninni. Neðri hæðin gæti líka verið t.d. verið heppileg til atvinnurekstrar eða sem herbergja útleiga.
Ásmunur Skeggjason fasteignasali, [email protected], Gsm 895 3000.-