Fallegt sumarhús í landi Snóksdals I í Dalabyggð u.þ.b. 140 km. frá Reykjavík. Sumarhúsið er á 9.498 m2 eignalóð með geysimiklu útsýni. Húsið er skráð 62,6 m2 timburhús á steyptum sökklum byggt árið 2004. Byggð hefur verið c.a. 10 m2 geymsla við húsið sem ekki er skráð í fermetratölu. Húsið er upphitað með rafmagnsofnum og varmadælu og heitt vatn er frá rafmagnshitakút. Timburverönd er kringum húsið með heitum potti. Svefnloft er yfir hluta hússins og er það ekki skráð í fermetratölu. Húsið er vandað og hefur fengið gott viðhald.
Húsið skiptist í forstofu/hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi og eldhús og stofu. Nánari lýsing: Forstofa og hol flísalagt. Geymsla innan forstofu.
Svefnherbergi með parketti og skápum.
Svefnherbergi með praketti go svefnkojum fyrir tvö.
Baðherbergi með dúk á gólfi og flisum á veggjum, gluggi, sturta og innrétting við vask. Tengt fyrir þvottavél.
Eldhús er opið við stofu, parkett á gólfi og falleg beykiinnrétting.
Stofa með parketti og útg. á verönd.
Upplýsingar veitir Runólfur Gunnlaugsson viðsk.fr. lögg.fast. á Höfða s. 8927798. [email protected]